Fosshótel Stykkishólmur

Fosshotel Stykkishólmur exterior
Fosshotel Stykkishólmur
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
Conference hall at the Fosshotel Stykkishólmur in the Snæfellsnes peninsula
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
Fosshotel Stykkishólmur exterior
Fosshotel Stykkishólmur
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
Mynd 1 af 0

Fundir á Fosshótel Stykkishólmi

Á Fosshótel Stykkishólmi skapast góðar aðstæður fyrir hópa sem vilja koma saman í notalegu umhverfi þar sem næði, gott aðgengi og persónuleg þjónusta fara saman. Hér er auðvelt að halda fundi, samkomur og vinnulotur þar sem umgjörðin styður við einbeitingu, samtöl og góð samskipti.

Rúmgóð fundaraðstaða í Stykkishólmi
Á Fosshótel Stykkishólmi er rúmgóður fundarsalur sem hentar bæði meðalstórum og stærri hópum. Salurinn getur tekið á móti allt frá 50 upp í 250 gestum og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fundi, kynningar og aðra viðburði.

Við leggjum áherslu á hlýlegt andrúmsloft og aðstöðu sem gerir gestum kleift að koma saman með þægilegum hætti í fallegu umhverfi Vesturlands.

Þjónusta sem styður við góðan fund
Góður fundur byggir á því að allt gangi vel fyrir sig. Starfsfólk okkar aðstoðar við skipulag og framkvæmd og sér til þess að fundargestir njóti faglegra og þægilegra vinnuaðstæðna allan tímann.

Fundarsalurinn er búinn nauðsynlegum tæknibúnaði og þráðlausu neti og hægt er að laga uppsetningu og þjónustu að þörfum hvers hóps.

Veitingar og hlé
Við bjóðum fjölbreyttar veitingalausnir sem henta bæði styttri fundum og lengri dagskrá. Áhersla er lögð á góð hráefni, hlýlegt andrúmsloft og notalega upplifun þar sem fundargestir geta sest niður og notið samverunnar á milli dagskrárliða.

Gott aðgengi og þægindi
Hótelið býður upp á góð bílastæði fyrir fundargesti sem koma akandi auk sérmerktra stæða fyrir hópferðabifreiðar. Einnig er góð aðstaða fyrir gesti með skerta hreyfigetu þannig að allir geti notið fundarins með þægilegum hætti.

Fyrir hópa sem vilja sameina fund og dvöl býður hótelið upp á þægilega gistingu í rólegu umhverfi Stykkishólms, þar sem stutt er í náttúru, haf og mannlíf bæjarins.

Fundir í rólegu og fallegu umhverfi
Á Fosshótel Stykkishólmi viljum við skapa fundarumhverfi þar sem fagmennska, ró og góð þjónusta fara saman. Með persónulegu viðmóti og vandaðri umgjörð leggjum við okkur fram um að fundargestir upplifi bæði þægindi og góð samskipti allan tímann.

Fosshotel Stykkishólmur

Borgarbraut 8, 340 Stykkishólmi
stykkisholmur@fosshotel.is
+354 430 2100

Senda fyrirspurn

Svör við algengum spurningum

  • Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.

  • Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.

  • Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð
Birting