Fosshótel Húsavík
Útskriftir og fermingaveislur á Fosshótel Húsavík
Fermingar- og útskriftardagurinn á að vera dagur gleði og samveru þar sem minningarnar fá að njóta sín - en ekki dagur fylltur af áhyggjum af skipulagi. Hjá okkur getið þið treyst því að undirbúningur og framkvæmd séu í öruggum höndum, svo þið getið notið stundarinnar með fjölskyldu og vinum.
Rými sem hentar ykkar hópi
Á Fosshótel Húsavík bjóðum við upp á veislusali sem henta bæði minni og stærri fjölskyldusamkomum. Hvort sem valið er hlýlegt og nánara rými eða stærri sal fyrir fjölmennari veislu, er salurinn settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli dagsins.
Við sjáum um framkvæmdina
Veitingateymi hótelsins leggur áherslu á fjölbreytta matseðla sem höfða jafnt til yngri sem eldri gesta. Skipulag, uppsetning og tækniaðstaða eru útfærð af fagmennsku svo allt gangi hnökralaust fyrir sig.
Með veislusal, veitingum og aðstoð á einum stað verður undirbúningurinn einfaldari og dagurinn léttari fyrir fjölskylduna. Gott aðgengi og bílastæði gera gestum auðvelt að koma og njóta dagsins í þægilegu umhverfi.
Almennar upplýsingar
- Ísbar
- Nammibar
- Myndakassi
- Næturbiti
Svör við algengum spurningum
Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.
Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.
Já það má koma með sína eigin fermingartertu.





