Fosshótel Stykkishólmur
Einkasamkvæmi og afmæli á Fosshótel Stykkishólmi
Hvort sem um er að ræða stórafmæli, ættarmót eða annað tilefni býður Fosshótel Stykkishólmur upp á notalega og trausta umgjörð í hjarta bæjarins.
Hér getið þið safnað fjölskyldu og vinum saman í rými sem hæfir tilefninu, á meðan við sjáum um skipulag og framkvæmd svo þið getið notið stundarinnar til fulls.
Hólmurinn
Hólmurinn er veislusalur hótelsins og hentar jafnt minni samkvæmum sem og stærri veislum. Salurinn er settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli tilefnisins, hvort sem um er að ræða formlegt borðhald eða léttari samveru.
Við sjáum um framkvæmdina
Veitingateymi hótelsins leggur metnað í vandaða matargerð og fallega framsetningu. Í samráði við ykkur er matseðill og fyrirkomulag mótað þannig að það hæfi tilefninu og gestunum.
Reynslumikið starfsfólk sér um skipulag og framkvæmd svo allt gangi vel fyrir sig. Með veislusal, veitingum og gistingu á einum stað verður skipulagið einfaldara og upplifunin heildstæð.
Svör við algengum spurningum
Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.
Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.
Skemmtanaleyfi er til kl. 00:00, nema ef allt hótelið hafi verið bókað undir viðburðinn.
Nei, ekki er í boði að koma með confetti.
Já, utanaðkomandi skemmtikraftar eru leyfilegir, ef þörf er á sviði eða hljóðkerfi er það leigt frá okkur.
Nei, salurinn leigist með öllum veitingum.
Já, en farið er fram á að þær séu fjarlægðar fyrir lok viðburðar eða eftir samkomulagi.





