Fosshótel Húsavík
Einkasamkvæmi og afmæli á Fosshótel Húsavík
Hvort sem tilefnið er stórafmæli, ættarmót eða annað samkvæmi býður Fosshótel Húsavík upp á hlýlega og faglega umgjörð fyrir veisluna.
Hér getið þið safnað fjölskyldu og vinum saman í rými sem hæfir tilefninu, á meðan við sjáum um skipulag og framkvæmd svo þið getið notið stundarinnar til fulls.
Rými sem hentar hverju tilefni
Hótelið býður upp á veislusali sem henta jafnt minni samkvæmum sem og stærri veislum. Hvort sem óskað er eftir nánari og persónulegri umgjörð eða rými fyrir fjölmenna samveru er salurinn settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli tilefnisins.
Við sjáum um smáatriðin
Veitingateymi hótelsins leggur áherslu á vandaða matargerð og fallega framsetningu sem höfðar til gesta á öllum aldri. Skipulag og framkvæmd eru í höndum reynslumikils starfsfólks svo allt gangi vel fyrir sig.
Þægindi á einum stað
Með veislusal, veitingum og gistingu á sama stað verður skipulagið einfaldara og veislan heildstæðari. Gott aðgengi og bílastæði gera gestum auðvelt að mæta og njóta samverunnar.
Almennar upplýsingar
- Ísbar
- Nammibar
- Myndakassi
- Næturbiti
Svör við algengum spurningum
Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.
Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.
Skemmtanaleyfi er til kl. 01:00.
Nei, ekki er í boði að koma með confetti.
Já, utanaðkomandi skemmtikraftar eru leyfilegir, ef þörf er á sviði eða hljóðkerfi er það leigt frá okkur.
Nei, salurinn leigist með öllum veitingum.
Já, en farið er fram á að þær séu fjarlægðar fyrir lok viðburðar eða eftir samkomulagi.
Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.



