Stjórn

Ólafur Torfason stjórnarformaður Íslandshótela

Ólafur Torfason

Stjórnarformaður

Ólafur er stofnandi og stjórnarformaður Íslandshótela og var framkvæmdastjóri þeirra um langt árabil. Hann hefur frá árinu 1992 verið einn helsti forystumaður íslenskrar ferðaþjónustu, setið í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar til fjölda ára og jafnframt tekið þátt í ráðagjafahópum um íslenska ferðaþjónustu.

Ólafur hefur á sama tíma verið umsvifamikill á byggingamarkaði og byggt upp hótel, verslunarkjarna og íbúðahúsnæði. Hann situr í stjórnum fjölda félaga sem tengjast Íslandshótelum ásamt stjórnarsetu í öðrum félögum.

Arnar Þór Másson

Arnar Þór Másson

Stjórnarmaður

Arnar hefur setið í stjórn félagsins frá 2022. Hann er sjálfstæður ráðgjafi og stjórnarmaður með fjölbreytta reynslu af einkamarkaði og frá hinu opinbera. Arnar er stjórnarmaður í JBT Marel Corp, á sæti í stjórn Símans og situr í Háskólaráði. Hann er jafnframt formaður endurskoðunarnefndar Íslandshótela. Þá situr Arnar í stjórn Festu – miðstöðvar um sjálfbærni á Íslandi.

Arnar er með meistarapróf í stjórnmálafræði frá London School of Economics and Political Science (LSE) og hefur diplómagráðu fyrir stjórnarmenn frá International Institute for Management Development (IMD).

Margit Robertet

Margit Robertet

Stjórnarmaður

Margit hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2015. Hún er framkvæmdastjóri framtakssjóðasviðs Kviku eignarstýringar en áður starfaði hún sem yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Auðar Capital og þar áður sem framkvæmdastjóri lánasviðs Straums Burðaráss fjárfestingarbanka. Margit starfaði erlendis um árabil, fyrst í hlutabréfateymi Barclays í London og síðar ein 10 ár í fyrirtækjaráðgjöf hjá Credit Suisse í París. Margit situr jafnframt í stjórn Matorku og Securitas og er formaður stjórnar Rotovia auk þess að vera í endurskoðunarnefnd Íslandshótela.

Margit er viðskiptafræðingur frá University of Colorado í Bandaríkjunum og er með MBA frá Rotterdam School of Management í Hollandi.

Hrund

Hrund Hauksdóttir

Stjórnarmaður

Hrund hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2025. Hrund tók við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs í desember 2024 eftir að hafa starfað á fjármálasviði félagsins frá árinu 2023.

Hrund er löggiltur endurskoðandi með M.Acc meistaranám í reiknishaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands og B.S. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði hjá endurskoðendaskrifstofunni BDO ehf. á árunum 2018 – 2023, hjá Deloitte á árunum 2013 – 2017 og sem forstöðumaður áhættustýringar hjá Landsbankanum frá 2005 – 2013.

Jon Haukur

Jón Haukur Jónsson

Stjórnarmaður

Jón Haukur kemur inn í stjórn Íslandshótela árið 2026. Hann er fjárfestingastjóri hjá Kviku Framtaki og var áður meðeigandi og starfsmaður hjá Stakki. Fyrir það starfaði hann í fyrirtækjaráðgjöf hjá Arctica Finance og á viðskiptabankasviði Arion banka. Jón Haukur situr jafnframt í stjórn Plaio og Amper Orku.

Jón Haukur er með meistaragráðu í fjármálum frá EADA Business School í Barcelona og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.