Fosshótel Vatnajökull

45443477745 3D6a0e3633 O
Axlarfoss at Fosshotel Vatnajökull
53936972507 Af0e7d8196 O
27645384443 B79ccd5643 O
45443477745 3D6a0e3633 O
Axlarfoss at Fosshotel Vatnajökull
Mynd 1 af 0

Brúðkaupsveislur á Fosshótel Vatnajökl

Við rætur Vatnajökuls, í stuttri akstursfjarlægð frá Höfn í Hornafirði, býður Fosshótel Vatnajökull upp á einstaka og eftirminnilega umgjörð fyrir brúðkaupsdaginn. Hér mætast víðáttumikil fjallasýn og rólegt umhverfi sem gefur deginum sérstakan svip.

Axlarfoss – salur með útsýni

Axlarfoss er glæsilegur og bjartur veislusalur sem hentar vel fyrir minni og meðalstórar brúðkaupsveislur. Salurinn rúmar allt að 56 gesti í sitjandi veislu og allt að 104 í standandi móttöku.

Stórfenglegt útsýni yfir Vatnajökul skapar hátíðlega og rómantíska umgjörð. Frá salnum er útgengt á rúmgóðan pall þar sem tilvalið er að bjóða upp á drykki og léttar veitingar þegar vel viðrar.

Veitingar

Veitingar frá veitingastað hótelsins eru unnar með áherslu á gæði og fallega framsetningu. Í samráði við brúðhjónin er matseðillinn mótaður þannig að hann endurspegli tilefnið og þeirra óskir.

Faglegt teymi okkar fylgir ykkur í undirbúningnum og tryggir að veislan gangi hnökralaust fyrir sig.

Gisting og aðgengi

Faglegt teymi aðstoðar einnig við skipulagningu gistingar fyrir gesti ef þess er óskað, svo veislusalur, veitingar og gisting fari saman á einum stað. Nálægðin við Höfn í Hornafirði gerir aðgengi gott fyrir gesti, hvort sem þeir koma af Suðurlandi eða lengra að.

Fosshotel Vatnajökull

Lindarbakki, 781 Höfn
vatnajokull@fosshotel.is
+354 478 2555

Salir - Hafðu samband

Almennar upplýsingar

    • Nammibar
    • Næturbiti

Svör við algengum spurningum

  • Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.

  • Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.

  • Miðað er við að allar veitingar séu keyptar af hótelinu þó auðvitað séu undanteikningartilfelli þegar ekki er hægt að verða við séróskum. 

  • Skemmtanaleyfi er til kl. 01:00. 

  • Nei, ekki er í boði að koma með confetti. 

  • Já, utanaðkomandi skemmtikraftar eru leyfilegir, ef þörf er á sviði eða hljóðkerfi er það leigt frá okkur.

  • Nei, salurinn leigist með öllum veitingum.

  • Já, en farið er fram á að þær séu fjarlægðar fyrir lok viðburðar eða eftir samkomulagi.

  • Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð
Birting