Fosshótel Vatnajökull
Erfidrykkjur á Fosshótel Vatnajökli
Fosshótel Vatnajökull býður upp á virðulega og hlýlega aðstöðu fyrir erfidrykkjur þar sem aðstandendur geta komið saman og átt samverustund í rólegu umhverfi.
Á hótelinu eru rúmgóð og björt rými sem henta bæði minni og stærri hópum. Hægt er að haga uppröðun í samræmi við stærð hóps og óskir hverju sinni.
Starfsfólk hótelsins aðstoðar við skipulag og útfærslu veitinga í samráði við aðstandendur og sér um framkvæmd af nærgætni og virðingu svo svigrúm gefist til að vera saman í friði og minnast.
Lögð er áhersla á látlaust og hlýlegt umhverfi þar sem samveran fær að vera í forgrunni.
Svör við algengum spurningum
Við aðstoðum ykkur við að velja veitingar og áætla magn sem hentar ykkar viðburði og fjölda gesta.
Gestafjöldinn getur stundum breyst. Látið okkur vita um leið og breytingar eiga sér stað og við gerum okkar besta til að sjá til þess að nægilegar veitingar séu til staðar fyrir alla.
Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.





