Hótel Reykjavík Saga

53821583754 6E93f1afef O
54367113601 8Be23f32d9 O
54366246722 Ea54e1de56 O
54367117036 0111D29968 O
54367324244 96Fefa98d7 O
54304842453 4961034Fd3 O
53821687840 B0fa3a986e O (1)
53821247596 C3b5aa13f6 O (1)
53821583754 6E93f1afef O
54367113601 8Be23f32d9 O
Mynd 1 af 0

Fyrirtækjaveislur á Hótel Reykjavík Sögu

Í hjarta borgarinnar, við Hljómskálagarðinn og í göngufæri frá miðbænum, býður Garðskálinn á Fröken Reykjavík upp á hlýlega og persónulega umgjörð fyrir árshátíðir og fyrirtækjaveislur.

Hér hentar umhverfið sérstaklega vel fyrir minni og meðalstóra hópa sem vilja koma saman í notalegu og fáguðu rými utan daglegs starfsumhverfis.

Rými fyrir samveru

Garðskálinn er bjart og aðgengilegt rými sem hentar jafnt formlegu borðhaldi sem og léttari móttöku. Á sumrin er hægt að opna út í garð og skapa létta og afslappaða stemningu sem styður vel við samveruna.

Rýmið heldur vel utan um hópinn og skapar aðstæður þar sem samtal og samvera fá að njóta sín.

Veitingar undir stjórn Snædísar Xyza Mae Jónsdóttur

Veitingar eru í höndum yfirmatreiðslumeistarans Snædísar Xyza Mae Jónsdóttur, sem keppir fyrir hönd Íslands í hinni virtu Bocuse d’Or kokkakeppni og hefur bæði verið hluti af íslenska kokkalandsliðinu og þjálfað það.

Undir hennar stjórn leggur teymi Fröken Reykjavík áherslu á vandaða matargerð, árstíðabundið hráefni og fallega framsetningu. Í samráði við ykkur er kvöldið mótað í takt við fyrirtækið og tilefnið, með heildarupplifun í fyrirrúmi.

Fagmennska og þægindi

Reynslumikið starfsfólk aðstoðar við skipulag og framkvæmd árshátíðarinnar og tryggir að allt gangi vel fyrir sig. Veislusalur, veitingar og gisting á Hótel Reykjavík Sögu fara saman á einum stað og skapa þægilega og samfellda upplifun fyrir gesti.

Sé þess óskað er hægt að bjóða hópum sérkjör í gistingu, og miðlæg staðsetning hótelsins auðveldar komu og brottför.

Fröken Reykjavík Kitchen & Bar

Hótel Reykjavík Saga
Lækjargata 12, 101 Reykjavík
bokanir@frokenrvk.is
+354 514 5040

Senda fyrirspurn

Svör við algengum spurningum

  • Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.

  • Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.

  • Nei, ekki er í boði að koma með confetti. 

  • Já, en ath salurinn er inn á veitingastað svo ekki má vera með háværa tónlist, aðeins létta stemmingu. 

  • Nei, salurinn leigist með öllum veitingum.

  • Já, en farið er fram á að þær séu fjarlægðar fyrir lok viðburðar eða eftir samkomulagi.

  • Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð
Birting