Hótel Reykjavík Grand

Brúðkaupsveislur
Brúðkaupsveislur
Weddings
38920389714 886C16f88b O
Brúðkaupsveislur
Brúðkaupsveislur
Weddings
Mynd 1 af 0

Brúðkaupsveislur á Hótel Reykjavík Grand

Á Hótel Reykjavík Grand fær brúðkaupsdagurinn verðuga umgjörð. Hér sameinast glæsilegir salir, fagleg þjónusta og áratuga reynsla af stórum viðburðum í umhverfi sem hæfir deginum. Áratuga reynsla af viðburðum, stórum sem smáum, tryggir skipulag sem heldur utan um smáatriðin. Faglegt teymi fylgir ykkur í undirbúningnum og tryggir að veislan gangi hnökralaust fyrir sig.

Stórir salir og fjölbreytt uppsetning

Hótel Reykjavík Grand er eitt stærsta og öflugasta viðburðahótel landsins og býður stílhreina og fjölbreytta sali sem henta jafnt náinni veislu sem og fjölmennu brúðkaupi. Aðstaðan gefur brúðhjónum kost á að velja á milli standandi móttöku með léttum veitingum eða formlegs borðhalds með dansi fram á kvöld. Lögð er áhersla á faglega skipulagningu og nákvæma framkvæmd þannig að brúðhjónin fái að njóta sín í hátíðlegu og traustu umhverfi.

Veitingar frá Grand Brasserie

Maturinn er hjarta brúðkaupsveislunnar. Í samstarfi við Grand Brasserie er lögð rík áhersla á gæða hráefni, faglega matreiðslu og glæsilega framsetningu. Matseðlar eru mótaðir í samráði við brúðhjón og áhersla lögð á að kvöldið flæði á eðlilegan og þægilegan hátt.

Þægindi á einum stað

Hótel Reykjavík Grand býður gott aðgengi og næg bílastæði fyrir brúðkaupsgesti. Fyrir þau sem vilja lengja gleðina er möguleiki á gistingu á hótelinu, svo kvöldið fái að líða mjúklega yfir í nýjan dag.

Þegar haldin er stærri brúðkaupsveisla býður Íslandshótel brúðarhjónum að gista á Hótel Reykjavík Grand á brúðkaupsnóttinni.

Hótel Reykjavík Grand

Sigtún 28, 105 Reykjavík
radstefnur.grand@hotelreykjavik.is
+354 514 8000

Senda fyrirspurn

Almennar upplýsingar

    • Ísbar
    • Nammibar
    • Myndakassi
    • Næturbiti

Svör við algengum spurningum

  • Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.

  • Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.

  • Miðað er við að allar veitingar séu keyptar af hótelinu þó auðvitað séu undanteikningartilfelli þegar ekki er hægt að verða við séróskum. 

  • Skemmtanaleyfi er til kl. 01:00. 

  • Nei, ekki er í boði að koma með confetti. 

  • Já, utanaðkomandi skemmtikraftar eru leyfilegir, ef þörf er á sviði eða hljóðkerfi er það leigt frá okkur.

    Ath. Háteigur er eini salurinn með uppsett hljóðkerfi.

  • Nei, salurinn leigist með öllum veitingum.

  • Já, en farið er fram á að þær séu fjarlægðar fyrir lok viðburðar eða eftir samkomulagi.

  • Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð
Birting