Fosshótel Stykkishólmur

54223094190 B5c0bac5a7 O
53723467159 6C3e29d927 O
38727652210 3Ffdcf7947 O
54222698691 4D79576e3c O
54223094190 B5c0bac5a7 O
53723467159 6C3e29d927 O
Mynd 1 af 0

Útskriftir og fermingaveislur á Fosshótel Stykkishólmi

Fermingar- og útskriftardagurinn á að snúast um gleði og samveru, ekki skipulag og undirbúning. Hjá okkur getið þið treyst því að umgjörð, veitingar og framkvæmd séu í góðum höndum, svo þið getið einbeitt ykkur að því að njóta dagsins með fjölskyldu og vinum.

Rými sem heldur vel utan um veisluna

Á Fosshótel Stykkishólmi bjóðum við upp á notalegan veislusal sem hentar jafnt minni sem stærri fjölskyldusamkomum. Salurinn er settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli veislunnar, hvort sem um er að ræða kaffiveislu eða veglegra borðhald.

Við sjáum um smáatriðin

Veitingateymi hótelsins leggur áherslu á vandaða matargerð og fallega framsetningu sem höfðar til gesta á öllum aldri. Skipulag, uppsetning og tækniaðstaða eru útfærð af fagmennsku svo allt gangi hnökralaust fyrir sig.

Með veislusal, veitingum og aðstoð á einum stað verður undirbúningurinn einfaldari og dagurinn léttari fyrir fjölskylduna.

Fosshotel Stykkishólmur

Borgarbraut 8, 340 Stykkishólmi
stykkisholmur@fosshotel.is
+354 430 2100

Senda fyrirspurn

Svör við algengum spurningum

  • Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.

  • Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.

  • Miðað er við að allar veitingar séu keyptar af hótelinu þó auðvitað séu undanteikningartilfelli þegar ekki er hægt að verða við séróskum. 

  • Nei, ekki er í boði að koma með confetti. 

  • Já, en farið er fram á að þær séu fjarlægðar fyrir lok viðburðar eða eftir samkomulagi.

  • Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð
Birting