Fosshótel Stykkishólmur

Fosshotel Stykkishólmur exterior
Fosshotel Stykkishólmur
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
Conference hall at the Fosshotel Stykkishólmur in the Snæfellsnes peninsula
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
54222698691 4D79576e3c O
54223094190 B5c0bac5a7 O
Fosshotel Stykkishólmur exterior
Fosshotel Stykkishólmur
Hólmurinn Venue at Fosshotel Stykkishólmur
Mynd 1 af 0

Ráðstefnur á Fosshótel Stykkishólmi

Á Fosshótel Stykkishólmi bjóðum við aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi og viðburði í notalegu og rólegu umhverfi Vesturlands. Hér fara fagmennska, persónuleg þjónusta og fallegt umhverfi vel saman og skapa góðar aðstæður fyrir viðburði þar sem fólk getur komið saman, unnið markvisst og notið samverunnar.

Rúmgóð ráðstefnuaðstaða í Stykkishólmi
Fosshótel Stykkishólmur býður upp á rúmgóðan sal sem hentar bæði meðalstórum og stærri ráðstefnum og samkomum. Salurinn rúmar allt frá 50 upp í 250 gesti og hægt er að laga uppsetningu og þjónustu að þörfum hvers viðburðar.

Við leggjum áherslu á þægilegt ráðstefnuumhverfi þar sem gott er að koma saman í hlýlegu andrúmslofti með náttúru og hafið í næsta nágrenni.

Þjónusta sem styður við viðburðinn
Undirbúningur ráðstefna verður einfaldari þegar reynsla og gott skipulag fara saman. Starfsfólk okkar aðstoðar við undirbúning og framkvæmd og sér til þess að allt gangi vel fyrir sig frá upphafi til enda.

Salurinn er búinn nauðsynlegum tæknibúnaði og þráðlausu neti og hægt er að laga bæði uppsetningu og þjónustu að þörfum hvers hóps.

Veitingar, gisting og góð upplifun
Við bjóðum fjölbreyttar veitingalausnir sem henta bæði styttri viðburðum og lengri dagskrá, með áherslu á góð hráefni, notalegt andrúmsloft og hlýlega þjónustu.

Fyrir ráðstefnugesti sem vilja sameina viðburð og dvöl býður hótelið upp á þægilega gistingu í friðsælu umhverfi Stykkishólms, þar sem stutt er í náttúru, hafið og mannlíf bæjarins.

Ráðstefnur með hlýlegu yfirbragði
Á Fosshótel Stykkishólmi viljum við skapa ráðstefnuumhverfi þar sem ró, fagmennska og góð þjónusta fara saman. Með persónulegu viðmóti og vandaðri umgjörð leggjum við okkur fram um að skapa góða upplifun fyrir bæði skipuleggjendur og gesti.

Fosshotel Stykkishólmur

Borgarbraut 8, 340 Stykkishólmi
stykkisholmur@fosshotel.is
+354 430 2100

Senda fyrirspurn

Svör við algengum spurningum

  • Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.

  • Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.

  • Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð
Birting