Hótel Reykjavík Grand
Árshátíðir og fyrirtækjaveislur á Hótel Reykjavík Grand
Á Hótel Reykjavík Grand fær árshátíðin trausta og faglega umgjörð. Með áratuga reynslu af stórum og smáum viðburðum leggjum við áherslu á fagmennsku, skipulag og þjónustu sem heldur utan um hvert smáatriði.
Reynsla og fagmennska
Reynslumikið starfsfólk fylgir ykkur frá fyrstu hugmynd að framkvæmd kvöldsins. Við leggjum metnað í skýra verkstjórn, gott flæði og lausnir sem laga sig að dagskrá og þörfum hvers fyrirtækis. Markmiðið er einfalt: að kvöldið gangi hnökralaust fyrir sig og standi undir væntingum.
Fjölbreyttir salir fyrir mismunandi hópa
Hótel Reykjavík Grand býður upp á fjölbreytta sali sem hentar bæði meðalstórum og fjölmennum árshátíðum. Háteigur, stærsti salur hótelsins, rúmar allt að 170-200 gesti við hringborð og býður upp á glæsilegt útsýni og aðgengi að svölum.
Aðrir salir henta vel fyrir smærri hópa eða sér viðburði innan kvöldsins. Sveigjanleg uppsetning gerir kleift að móta rýmið í takt við umfang og eðli árshátíðarinnar.
Fyrir framan Háteig er rúmgott forrými sem hentar vel fyrir fordrykk, móttöku eða samveru áður en sest er til borðs.
Veitingar
Veitingateymi hótelsins leggur áherslu á gæði og fallega framsetningu, hvort sem óskað er eftir hátíðlegu borðhaldi eða léttari kvöldmóttöku. Þjónustan er fagleg og áreiðanleg.
Gisting og aðgengi
Hótel Reykjavík Grand býður gott aðgengi og næg bílastæði fyrir gesti. Sé þess óskað er hægt að bjóða hópum sérkjör í gistingu, sem gerir fyrirtækjum kleift að sameina árshátíð og þægilega dvöl á einum stað.
Almennar upplýsingar
- Ísbar
- Nammibar
- Myndakassi
- Næturbiti
Svör við algengum spurningum
Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.
Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.
Skemmtanaleyfi er til kl. 01:00.
Nei, ekki er í boði að koma með confetti.
Já, utanaðkomandi skemmtikraftar eru leyfilegir, ef þörf er á sviði eða hljóðkerfi er það leigt frá okkur.
Nei, salurinn leigist með öllum veitingum.
Já, en farið er fram á að þær séu fjarlægðar fyrir lok viðburðar eða eftir samkomulagi.
Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.





