Hótel Reykjavík Grand
Erfidrykkjur á Hótel Reykjavík Grand
Hótel Reykjavík Grand býður upp á virðulega og vandaða umgjörð fyrir erfidrykkjur. Salir hótelsins henta jafnt minni hópum sem og stærri samkomum og gott aðgengi gerir gestum auðvelt að koma saman.
Reynslumikið teymi aðstoðar við val á sal og útfærslu veitinga í samráði við aðstandendur og sér um skipulag og framkvæmd af virðingu og yfirvegun. Lögð er áhersla á að allt fari fram með næmni og fagmennsku.
Markmið okkar er að skapa rólegt og hlýlegt umhverfi þar sem aðstandendur fá svigrúm til að vera saman í friði og næði.
Svör við algengum spurningum
Við aðstoðum ykkur við að velja veitingar og áætla magn sem hentar ykkar viðburði og fjölda gesta.
Gestafjöldinn getur stundum breyst. Látið okkur vita um leið og breytingar eiga sér stað og við gerum okkar besta til að sjá til þess að nægilegar veitingar séu til staðar fyrir alla.
Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.





