Erfidrykkjur

Róleg stund til samveru og minninga

Hvammur meeting facilities at Hotel Reykjavik Grand
Hvammur meeting facilities at Hotel Reykjavik Grand
Háteigur conference room at Hotel Reykjavik Grand
52435428963 C6e9465009 O
Gallerí meeting room at Hotel Reykjavík Grand
Setrið Venue at Hotel Reykjavík Grand
Hvammur meeting facilities at Hotel Reykjavik Grand
Hvammur meeting facilities at Hotel Reykjavik Grand
Hvammur meeting facilities at Hotel Reykjavik Grand
Mynd 1 af 0

Erfidrykkjur hjá Íslandshótelum

Erfidrykkja er stund til samveru, minninga og þakklætis. Hjá Íslandshótelum leggjum við metnað í að bjóða upp á virðulega og vandaða umgjörð þar sem aðstandendur geta komið saman í rólegu og notalegu umhverfi, án þess að þurfa að huga að skipulagi eða framkvæmd.

Áhersla er lögð á næði, virðingu og faglega þjónustu. Rými hótelanna henta jafnt litlum sem stærri hópum og fyrirkomulag er lagað að þörfum hverju sinni, hvort sem um er að ræða einfalda kaffiveislu eða veitingar fyrir lengri samveru. Uppsetning og veitingar eru útfærð af nærgætni og alúð í samráði við aðstandendur, og starfsfólk leggur metnað í að allt fari fram af virðingu og yfirvegun.

Markmið okkar er að skapa umgjörð sem veitir svigrúm til samveru og minninga í friði og ró.

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð
Birting