Fosshótel Húsavík
Erfidrykkjur á Fosshótel Húsavík
Á Fosshótel Húsavík er boðið upp á virðulega umgjörð fyrir erfidrykkjur þar sem aðstandendur geta hist og átt samverustund í rólegu og hlýlegu rými.
Hótelið býr yfir fjölbreyttum sölum sem hægt er að laga að stærð hóps og þörfum hverju sinni, hvort sem um ræðir fámennan hóp eða stærri samkomu.
Starfsfólk hótelsins leggur sig fram við að undirbúa og útfæra veitingar í samráði við aðstandendur og annast skipulag af yfirvegun og nærgætni. Þannig skapast svigrúm til að vera saman í friði.
Við leggjum áherslu á rólega og virðulega umgjörð þar sem minningar fá að eiga sitt rými.
Svör við algengum spurningum
Við aðstoðum ykkur við að velja veitingar og áætla magn sem hentar ykkar viðburði og fjölda gesta.
Gestafjöldinn getur stundum breyst. Látið okkur vita um leið og breytingar eiga sér stað og við gerum okkar besta til að sjá til þess að nægilegar veitingar séu til staðar fyrir alla.
Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.

