Fermingarveislur og útskriftir
Tímamót sem vert er að fagna!
Fermingarveislur og útskriftir hjá Íslandshótelum
Útskriftir og fermingar eru mikilvæg tímamót í lífi fjölskyldunnar. Við bjóðum upp á notalega umgjörð þar sem fjölskylda og vinir geta komið saman og notið dagsins í rólegu og fallegu umhverfi.
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og skipulag sem tekur mið af óskum hverrar fjölskyldu. Hvort sem um er að ræða kaffiveislu, létta móttöku eða veglegra borðhald er hver veisla mótuð í samráði við ykkur.
Í boði eru veislusalir af mismunandi stærðum og fjölbreyttir matseðlar sem höfða jafnt til yngri sem eldri gesta. Uppsetning og tækniaðstaða eru útfærð eftir þörfum og starfsfólk okkar leggur metnað í hlýlega og faglega þjónustu.
Markmið okkar er að gera daginn einfaldan í skipulagi og ánægjulegan í framkvæmd, svo fjölskyldan geti einbeitt sér að því sem skiptir máli - að njóta samverunnar og skapa fallegar minningar.




