Háteigur
Glæsilegur veislu- og fundarsalur á Hótel Reykjavík Grand
Háteigur er rúmgóður veislusalur á fjórðu hæð Hótel Reykjavík Grand með fallegu útsýni og aðgengi að svölum. Salurinn hentar vel fyrir veislur og viðburði af ýmsu tagi, allt frá brúðkaupum og móttökum til funda, ráðstefna og einkasamkvæma. Falleg vegglýsing og loftlýsing skapa hlýlega og eftirminnilega stemningu.
Salurinn rúmar 170–200 gesti við hringborð, 200 gesti í bíóuppstillingu og allt að 50 gesti í U-uppstillingu. Háteigur er leigður með hringborðum, en hægt er að aðlaga uppstillingu salarins eftir þörfum gegn breytingagjaldi.
Í salnum er þráðlaust net og fullbúinn fundarbúnaður, þar á meðal skjávarpi, sýningartjald, hljóðkerfi, púlt og panel-hljóðnemi.
Fyrir framan salinn er rúmgott forrými sem hentar vel fyrir fordrykk, móttökur og samveru gesta áður en viðburður hefst.
Útfærslumöguleikar á sal
Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu
Spurt og svarað
- Skjávarpi/skjár og sýningartjald
- Púlt og hljóðnemi
- Wi-Fi
- Hljóðkerfi fyrir talað mál
- Þrif, borðbúnaður, dúkar og þjónusta
- Uppsetning: hringborð (ath auka kostnaður er ef uppsetning er önnur)
- Hægt að óska eftir: svið, panel og skráningarborði
Já, hægt er að fá auka tæknibúnað gegn gjald. Vinsamlegast hafið samband fyrir nánari upplýsingar.



